Velkomin til Henson
Sérsniðin íþróttafatnaður framleiddur af Henson
HENSON var stofnað í maí 1969 og dregur nafn sitt frá stofnanda þess sem enn er forstjóri fyrirtækisins. Það hefur verið mikil ánægja að upplifa þær gríðarlegu breytingar sem sem átt hafa sér stað í efnum og tækninni sem heimurinn bíður upp á, og við höfum verið fljót að fjárfesta í. Við stofnum hafði ég ekki hugmynd um að HENSON er nokkuð þekkt fjölskyldunafn í hinum vestræna heimi. Henson framleiðsla hefur þjónað á mörgum frægum leikvöllum eins og Wembley í London og í Barcelona og verið á Olympíuleikum og Heimsmeistarakeppnum. Við erum stolt af því að framleiða vandaðann fatnað og bjóða frábæra þjónustu. Þrjú félög sem leikið hafa í Henson hafa orðið Evrópumeistarar og eru; Aston Villa FC, Spartak Kiev og Czka Moscow. Frá okkar lágstillta upphafi í eldhúsinu heima höfum við vaxið í að verða hátækniverksmiðja sem sníður, prentar og saumar í eigin 1100m2 húsnæði í hjarta Reykjavíkur. Við vinnum einnig með verksmiðjum í Asíu þegar það á við, einnig með hönnuðum og aðilum sem nýta sér þekkingu okkar og framleiðslu og við erum opin til viðræðu ávallt. Það má skilgreina Henson sem vörumerki sem hefur haft áhrif á umhverfi sitt og í leiðinni eignast aðdáendur. Henson var vægast sagt nærri því að verða stórt vörumerki bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum á sínum tíma en örlögin voru fyrirtækinu ekki samferða.

The Faces of Henson






