Íslensk hönnun
Er eitthvað meira íslenskt en að HENSON framleiði alls konar treyjur og fatnað í íslenska fánalitunum? Við eða viðskiptavinurinn hönnum fötin og þau eru síðan framleidd hér í Brautarholti með bestu prenttækni sem völ er á í dag. Eitt stykki eða fleiri þegar þér hentar. Ég, Halldór Einarsson, stofnandi og eigandi Henson, sem skrifar þessar línur, sakna þess oft þegar ég sé íslenska keppendur erlendis í búningum að þeir séu ekki að keppa í fánalitunum. Nýlegt dæmi er landsliðsbúningur HSÍ, þar sem rauði liturinn var í treyjunum. Nei, enginn metnaður af hálfu framleiðendanna, en þeir komu með eitthvað sem var í boði. Þegar við bjuggum síðast til búninga fyrir Ólympíufara, þar á meðal handboltaliðið sem vann silfur í Peking 2008, voru þeir fallegir og í fánalitunum. Stundum hef ég séð fulltrúa Íslands bera fánann eða merki sambandsins hægra megin en ekki á hjartanu því framleiðandi fatnaðarins tók það pláss. Já, metnaðurinn er oft ekki mikill og þó að könnun hafi leitt í ljós að 73% Þjóðverja athugi hvort varan sem þeir ætla að kaupa sé ekki örugglega framleidd í Þýskalandi, get ég sagt ykkur eftir 57 ára framleiðslu á Íslandi að 7,3% Íslendinga hafa þennan metnað.











