Körfubolti

Körfubolti
Vinsældir körfuboltans á Íslandi hafa aukist með árunum og við höfum svo sannarlega haft puttann á púlsinum í gegnum árin. Í gegnum tíðina höfum við nokkuð örugglega gert búninga fyrir öll félög sem stundað hafa þessa eðal íþrótt og 2013 náðum við þeim magnaða árangri að gera búningana fyrir öll liðin í efstu deild körfuboltans á Íslandi. Mögulega er þetta met, þ.e.a.s. að sennilega hefur það aldrei gerst að öll lið í efstu deild hópíþrótta á Íslandi hafi á tilteknu keppnistímabili leikið í búningum frá sama framleiðanda.Við höfum aðgang að ótal hönnunum sem setja má saman í þeirri litasamsetningu sem óskað er, engin stærð er ekki til og auðvelt að afgreiða þó ekki vanti nema eina flík eftir að endanlegt útlit hefur verið vistað í kerfinu. Prentunin verður hluti af efninu og ekkert losnar eða springur og efnið andar allan hringinn. Aðferðin sem við notum í framleiðslunni er sú besta sem völ er á í heiminum í dag og við erum hér til að þjónusta körfuboltafélögin með allann fatnað sem lið þitt þarf á að halda. Við fullyrðum að fleiri lið hafi orðið Íslandsmeistarar í HENSON en öllum innfluttum tegundum til samans.

Nokkur dæmi um körfuboltasett okkar

Loading...