Sérhannaðir skíðagallar

Skíðagallar

Við framleiðum skíðagallana í þeirri hönnun sem viðskiptavinurinn er ánægður með og efnin sem við notum kaupum við frá Schoeller í Swiss sem er eitt allra þekktasta merkið á sínu svið framleiðslu.

Fjöldi landsliða keppir í búningum sem framleiddir eru úr efnum frá Schoeller og við höfum einmitt í nokkur ár gert gallana fyrir Íslenska landsliðið á skíðum. Engin krafa um fjölda frá okkar hálfu og ef að vantar aðeins einn galla þá græjum við hann.

Rásvesti framleiðum við og í okkar mikla úrvali af úlpum finnst trúlega flíkin sem hentar sem við síðan getum auðvelda merkt.

Skíðagallarnir  frá okkur.